BÆKUR OG UMFJÖLLUN
Thomas Atlee, sem er skólastjóri The College of Craniosacral Therapy (CCST) og líka kennari flestra félagsmanna, hefur gefið út 2 bækur um höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Fyrsta bókin heitir Cranio-Sacral Integration og er það meira og minna kennsluefnið hans. Alhliða leiðbeiningar um handstöður og höfuðbeina- og spjaldhryggskerfið. Hin bókin heitir Face to Face with the Face og fjallar um meðferð á andlitinu og höfuðtaugar með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Báðar bækurnar eru fáanlegar á www.amazon.com Stanley Rosenberg hefur gefið út athyglisverða bók sem fjallar um flakktaugina og hluta hennar í kvíða, þunglyndi og áföllum. Það er hægt að kaupa hana sem rafbók (e-book) á www.amazon.com |
FÆÐINGARÁVERKAR
Afleiðing samþjöppunar höfuðkúpu
eftir Thomas Attlee, Skólastjóra Cranio Sacral School of London.
Ef höfuðkúpa okkar verður fyrir einhvers konar hindrun í fæðingu er líklegt að það hafi áhrif á okkur öll að einhverju leiti. Það er álitið að í alvarlegum tilvikum, geti slík hindrun leitt til heilaskaða, heilalömunar, (krampalömunar), eða einhverfu, eða geti átt þátt í vöggudauða. Í vægari tilvikum getur það leitt til lesblindu, námserfiðleika, ofvirkni, flogaveiki, þráhyggju, persónuleikatruflana og ýmiss konar þroskavandmála. En í okkur öllum (sem teljumst vera “eðlilegir” einstaklingar) getur slík hindrun, þó hún sé minniháttar, átt mikilvægan þátt í að ákvarða almennt heilbrigði okkar og líkamsbyggingu, næmleika okkar gagnvart ofnæmi, astma, mígreni, rangeygð og fjölmörgum öðrum kvillum.
Einnig getur hún haft áhrif á þroska allra kerfa líkamans, (taugakerfisins, meltingarkerfisins, ónæmiskerfisins, o.s.frvs.) og þannig haft áhrif á allt okkar líf.