Um félagið
Stjórn félagsins:
|
Stjórn Cranio félagsins (frá vinstri):Halla Eiríksdóttir, Hjördís Kristinsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Grétar Pálsson og Stefanía S. Ólafsdóttir - Á myndina vantar Mörtu Sonju Gísladóttir.
cforms contact form by delicious:days
Upphafið
Félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara var stofnað árið 1996 og hét þá ATLAS. Forsaga þess að þessi tegund meðferðar barst til Íslands er sú að Gunnar Gunnarsson sálfræðingur kynntist H.S. jöfnun í Þýskalandi og stóð fyrir því að skipuleggja slíkt nám hér á landi. Gunnar er sálfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað mikið með sál – líkamleg vandamál.
Nám í Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun fór fyrst fram í Reykjavík árið 1994 og var í þrem hlutum. Hvert námskeið tók 7 daga. Kennari var þjóðverjinn Svarupo Heike Pfaff, Heilpraktikerin. Hún stundar H.S jöfnun auk þess að þjálfa fólk við beitingu þessarar meðferðar. Hún nam m.a. við Upledger Institute í Flórída. Hún er einnig lærð í reflexologi, visceral-therapy, basic chirotherapy, ennfremur hefur hún lengi unnið við meðferð sálrænna vandamála.
Á milli námskeiða hittust nemendur og æfðu sig verklega saman, auk þess sem nemendur þjálfuðu sig sjálfstætt og undirbjuggu sig fyrir næsta námskeið. Undirbúningurinn fólst í verklegum æfingum og bóknámi. Þær bækur sem námið byggði á voru Craniosacral Therapy 1, Craniosacral Therapy 2, (Beyond the Dura), Somato Emotional Release og Your Inner Physician and You. Námskeiðin í heild sinni tóku 165 klukkustundir og luku með prófi. Hér á landi lauk 25 manna hópur við nám í Höfuðbeina og Spjaldhryggsjöfnun árið1995 og 35 manns árið 1998.
Hér var um algert brautryðjanda nám að ræða og því ekki krafist sérstakra inntökuskilyrða. Þeir sem sóttu þessi námskeið eru t.d. hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, sjúkranuddarar, kennarar, nuddarar, sjúkraliðar og heilarar.
Árið 1997 fóru Guðrún Hauksdóttir og Gunnar Gunnarsson til London í frekara nám varðandi vinnu með börn í College of Cranio-Sacral Therapy. Það varð til þess að í október 1998 kom Thomas Attlee skólastjóri til Íslands og hóf kennslu á vegum CCST hér á landi. Thomas kenndi hér fram til ársins 2006.
Vorið 2011 var svo stofnaður nýr íslenskur skóli, Höfuðlausn, undir stjórn Ingu Þórðardóttur og Birnu Imsland. Skólinn er í samstarfi við CCST.




