Nýr skóli
Í vor var stofnaður nýr íslenskur skóli sem kennir höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Það eru Birna Imsland og Inga Þórðardóttir sem standa fyrir honum, en skólinn hefur hlotið nafnið Höfuðlausn. Birna og Inga voru í fyrsta og öðrum hópnum sem lærðu höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun hérlendis og hafa því langa starfsreynslu í faginu. Þær unnu báðar við College of Cranio-Sacral Therapy meðan hann var með útibú hérlendis og eru í nánu samstarfi við hann. Birna var fyrsti formaður félagsins okkar og Inga hefur einnig setið í stjórn.
Þær stöllur segja það markmið sitt að kennslan sé vönduð og að vel sé haldið utan um nemendur í náminu. “Við ætlum að breyta venjulegum mannshjörtum í hjörtu höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara,” segja þær, en það eina sem er í rauninni nauðsynlegt til að geta orðið höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari er löngunin, því allir hafa innbyggðan hæfileika til þess.
Námið tekur þrjá vetur. Kennt er á föstudagskvöldum, laugardaga og sunnudaga, níu sinnum hvern vetur. Kennslutíminn miðast við að fólk utan af landsbyggðinni geti sótt skólann. “Mér finnst að það ætti að vera höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari í hverjum einasta bæ á öllu landinu,” segir Birna.
Námsefnið er á íslensku og vel til þess vandað. “Við miðum áherslurnar í kennslunni fyrst við að byggja góðan grunn en svo ætlum við að flétta saman við hann heilmiklum sérhæfðari fróðleik, þannig að útkoman verði heildræn meðferð, sem getur jafnframt tekið á flestu því sem rekur á fjörur höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara í starfi,” segja þær.
Kennsla hefst í september 2011. Skráning fer fram á www.hofudlausn.is og í síma 861 6152.
Félagið óskar þeim Ingu og Birnu til hamingju með nýja skólann.



